Dagsetningar: 6.-9. júní 2025
Staðsetning: Tónskóli Sigursveins, Hraunberg 2, 111 Reykjavík
Lokatónleikar: Tónlistarmiðstöð Læti! Völvufelli 17, 111 Reykjavík
Fullorðinsrokk Læti! / Stelpur rokka! eru fjögurra daga þjálfunarbúðir yfir hvítasunnuhelgi. Í búðunum lærum við að spila á hljóðfæri, stofnum hljómsveitir og semjum lög, milli þess að við sækjum vinnustofur, tökum þátt í umræðuhringjum og lærum um rokksögu og textasmíði. Hljómsveitirnar semja sín eigin lög og flytja á lokatónleikum.
Þátttakendur taka með sér nesti fyrir daginn en boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Lokatónleikar fara fram mánudaginn í Tónlistarmiðstöð Læti! Þá munu þátttakendur spila fyrir sal fullum af vinum og fjölskyldu.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldri, sem tilheyrir jaðarsettum kynjum í tónlist (konur, kvár, trans menn og intersex fólk). Það hentar vel fyrir byrjendur þar sem engin krafa er um fyrri reynslu. Einnig bjóðum við velkomin þau sem hafa góðan grunn í tónlist.
Flestir þátttakendur hafa lítinn grunn á hljóðfærinu sínu en mörg sem hafa tónlistarlegan bakgrunn nýta tækifærið og læra á glænýtt hljóðfæri. Aðalmálið er bara að hafa gaman í skapandi rými!
Í búðunum búum við til öruggara rými fyrir fólk sem tilheyrir jaðarsettum kynjum í tónlist og allir okkar leiðbeinendur eru konur, kvár, intersex og trans einstaklingar.
Enginn hámarksaldur!
Fólk velur sig sjálft saman í hljómsveitir, yfirleitt út frá aldri eða tónlistaráhugasviði.
Dagsetningar:
Föstudagur 6. júní: 16:30–20:30
Laugardagur 7. júní: 12:00–18:00
Sunnudagur 8. júní: 12:00–18:00 (hvítasunna)
Mánudagur 9. júní: 13:00–17:30 (annar í hvítasunnu)
Lokatónleikar: Mánudaginn 9. júní kl. 17:30-18:30 í Tónlistarmiðstöð Læti!
Við byrjum að læra á hljóðfæri á föstudagskvöldi og förum svo í hljómsveitatíma á laugardegi og sunnudegi. Á mánudeginum (annan í hvítasunnu) er undirbúningur fyrir tónleika um kvöldið.
*Birt með fyrirvara um smávægilegar breytingar!
Hvað kostar?
Þátttökugjald er valfrjálst en viðmiðið er 35.000 kr.
Reikningsnúmer: 301-26-700112
Kennitala: 700112-0710
Skýring: Fullrokk
Til að fá kvittun fyrir stéttarfélög, hafið samband á info@stelpurrokka.is.
Stelpur rokka! / Læti! eru sjálfboðasamtök sem starfa ekki í hagnaðarskyni og eru öll framlög umfram viðmiðunargjald vel þegin. Frí pláss eru einnig í boði.
SKRÁNING: https://forms.gle/9dQQotVevAxxE73K8
Um er að ræða sömu rokkbúðir og hétu áður „Kvennarokk“.

ENGLISH
ADULT ROCK CAMP 2025
Dates: June 6-9, 2025
Location: Sigursvein’s Music School, Hraunberg 2, 111 Reykjavík
Final Concert: Læti! Music Center Völvufelli 17, 111 Reykjavík
Adult Rock Camp of Læti! (f.k.a. Girls Rock!) is a four-day training camp over the Whitsun weekend. At the camp we learn to play instruments, form bands and write songs, in between attending workshops, participating in discussion groups and learning about rock history and songwriting. The bands write their own songs and perform at the final concert.
Participants bring a packed lunch for the day, but coffee and light refreshments will be provided.
The final concert will take place on Monday at Læti! Music Center, where the participants will play to a packed audience of friends and family.
For whom?
The course is for people, 18 years and older, who belong to marginalized genders in music (women, non-binaries, trans men and intersex people). It is well suited for beginners as there is no requirement for previous experience. We also welcome those with a good foundation in music.
Most participants have little knowledge of their instrument, but many who have a musical background take advantage of the opportunity and learn a brand new instrument. The main thing is just to have fun in a creative space!
At the camp we create a safer space for people who belong to marginalized genders in music and all our instructors are women, non-binary, intersex and trans people.
No maximum age!
Participants choose how to form the bands themselves, usually based on age or musical interest.
Schedule*:
Friday 6 June: 16:30–20:30
Saturday 7 June: 12:00–18:00
Sunday 8 June: 12:00–18:00 (Whitsun)
Monday 9 June: 13:00–17:30 (Whitsun)
Final Concert: Monday June 9th 17:30-18:30 at Læti! Music Center
We start learning instruments on Friday evening and then go to band lessons on Saturday and Sunday. On Monday (Whitsun) there is preparation for the concert that evening.
*Published subject to minor changes!
How much does it cost?
Participation fee is optional but the standard is 35,000 ISK.
Account number: 301-26-700112
ID number: 700112-0710
Description: Fullrokk
To get a receipt for your union fund, please contact info@stelpurrokka.is
Girls Rock! / Læti! is a non-profit, voluntary organization and all donations above the reference fee are welcome. Free places are also available.
REGISTRATION: https://forms.gle/9dQQotVevAxxE73K8
This is the same camp that once was called „Women’s Rock“.

