Rokkbúðir

Sumarbúðir í tónlist

ROKKBÚÐIR 10-12 ÁRA 2026

ROKKBÚÐIR 13-16 ÁRA 2026

FULLORÐINSROKK 2026

Frá árinu 2012 hafa samtökin haldið rokkbúðir á Íslandi. Langflestar hafa verið haldnar í Reykjavík en gegnum árin hafa búðirnar verið settar upp hér og þar!

Við höldum rokkbúðir fyrir bæði krakka og fullorðið fólk og leggjum okkur fram við að skapa öruggara rými fyrir kynjaminnihluta í tónlist.

Í rokkbúðunum er þátttakendum boðið upp á dagskrá sem samanstendur af hljóðfæratímum, hljómsveitaæfingum, vinnusmiðjum, tónleikaheimsóknum, hópeflisleikjum, hressingu, þemavinnu og tilkomumiklum lokatónleikum þar sem hver hljómsveit flytur frumsamið lag fyrir framan fullan sal fjölskyldu og vina.

Við notum valdeflandi kennsluaðferðir og sjálfboðaliðar okkar eru feminískar fyrirmyndir. Markmið okkar er að þátttakandinn ljúki búðunum með meira þor og gleði í hjarta.

Rokkbúðir í Reykjavík eru iðullega haldnar í Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík.

Frí og niðurgreidd pláss eru í boði. Lesa meira um valfrjáls þátttökugjöld.

Engin hljóðfærakunnátta er nauðsynleg til að skrá þátttöku.

Fyrir hverja?

Rokkbúðirnar eru fyrir stelpur og fólk af jaðarsettum kynjum í tónlist; kvenkyns, kynsegin, trans og intersex.

Yngsti hópurinn er 10-12 ára, sá næsti er 13-16 ára og einnig bjóðum við upp á fullorðinsrokk. Við gefum 17 ára tækifæri á að velja milli unglingabúða og fullorðinsbúða.

Hvað er öruggara rými?

Í rokkbúðum leggjum við áherslu á að skapa öruggara rými. Það gerum við t.d. með því að gefa öllum færi á að tjá tilfinningar sínar og skapa hljómsveitarsáttmála með sínu bandi, við tilkynnum öðrum hvaða persónufornöfn við notum og ítrekum mikilvægi trúnaðar fyrir fólk sem notar önnur persónufornöfn innan veggja rokkbúðanna en utan.

Hvað eru valdeflandi kennsluaðferðir?

Sjálfboðaliðar okkar eru feminískar fyrirmyndir. Við tölum fallega til okkar alveg eins og við peppum þátttakendur. Við hvetjum ykkur áfram í ykkar tónlistarsköpun og pössum að allir hljómsveitarmeðlimir fái að segja sína skoðun. Við hjálpum þeim sem vanalega taka lítið pláss að koma út úr skelinni.

Aðgengi

Aðgengi í Tónlistarskóla Sigursveins er góð á jarðhæð. Meirihluti dagskráarinnar fer fram þar en þó gætu verið einhverjar valfrjálsar vinnusmiðjur á efri hæðinni (engin lyfta). 

Hljómsveitarými eru nokkur og eru staðsett á báðum hæðum. Sé þátttakandi með hreyfihömlun getur sú hljómsveit verið í rými á jarðhæð.

Hurðarnar sem snúa að Gerðubergi geta verið nokkuð þungar og fyrirferðamiklar en hægt er að opna dyr sem snúa að Breiðholtslaug og eru beint fyrir framan P merkt stæði.

Eigi þátttakandi erfitt með mikið áreiti er alltaf í boði að slaka á í sérstöku slökunarrými.

Síður: 1 2