Gildin okkar


Starfið hjá Læti! stendur öllum opið, óháð bakgrunni eða aðstæðum, með áherslu á að skapa öruggara og valdeflandi rými fyrir stelpur og einstaklinga sem tilheyra jaðarsettum kynjum.

Valfrjáls þátttökugjöld í rokkbúðum

Við erum meðvituð um að ekki stendur öllum þátttakendum jafnt til boða að taka þátt í starfinu vegna fjárhags, félagslegrar stöðu eða annarra aðstæðna. Þess vegna leggur Læti! sérstakan metnað í að vera eitt af fáum verkefnum á Íslandi sem vísar engum þátttakanda frá rokkbúðum vegna fjárskorts. Við erum með viðmiðunarþátttökugjald, en þátttakendur velja sjálfir upphæðina sem þeir greiða og þurfa ekki að greiða neitt ef það er þeirra val. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mjög vel frá upphafi.

Okkar reynsla er sú að frí eða niðurgreidd pláss fari til þeirra sem mest þurfa á því að halda.

Hugmyndafræðin

Það er enn mikið verk óunnið til að leiðrétta kynjahalla í íslensku tónlistarlífi. Hlutfall kvenna, trans fólks og kynsegin einstaklinga á tónlistarhátíðum, sem höfunda og í stjórnum tónlistartengdra stofnana, er lágt. Stelpur, trans strákar og kynsegin ungmenni byrja sjaldnar en sís strákar að semja og spila tónlist á unglingsárum, oft vegna skorts á sjálfstrausti og rými til að tjá sig.

Markmið okkar er að skapa öruggari rými þar sem þátttakendur fá tækifæri til að spegla sig í fyrirmyndum, prófa sig áfram og þróa tónlistarhæfileika sína. Þeir mynda tengsl við aðra með áhuga á tónlist og fá tækifæri til að sjá sig sem skapandi tónlistarfólk. Oft eru þetta fyrstu skref þeirra í tónlist.

Jafnréttisfræðsla

Jafnréttisfræðsla er stór þáttur í starfinu, þar sem þátttakendur læra um jafnréttisbaráttu jaðarhópa. Við vinnum með öðrum samtökum og stöndum með öllum jaðarsettum hópum í baráttu þeirra fyrir jöfnum rétti til þátttöku í samfélaginu.

Starfsemi Læti! stendur öllum opin, óháð uppruna, fjárhag, litarhafti, líkamsgerð, ætterni, heilsufari, kynhneigð, kyngervi, trú, getu, móðurmáli, fötlun eða öðrum breytum.