Leigja æfingarými

Tónlistarmiðstöðin

Tónlistarmiðstöðin okkar í Völvufelli skiptist í tvö rými; V17 og V15. V17 er tónleikasalur þar sem margar hljómsveitir æfa reglulega.

Öllum kynjum er velkomið að leigja rýmið fyrir eigin verkefni.

Skipti í viku (2 klst. í senn)
1x í viku – 19.900 kr.
2x í viku – 29.900 kr.
3x í viku – 39.900 kr.

Tónleikar
60.000 kr. (án hljóðmanneskju)
– Minnum á að rýmið er áfengislaust –

Ef þið hafið eitthvað annað í huga og viljið leigja rýmið, hafið samband við leigav17@gmail.com

Rýmið leigist með hljóðkerfi og hljóðfærum. Athugið að ekki er leyfilegt að neyta áfengis eða annarra vímuefna inni í rýminu.

Hafið samband við leigav17@gmail.com til að leigja rými.

V17

Hægt að leigja undir æfingar og tónleika. Mixerinn okkar er stafrænn og inniheldur X rásir. Sviðið er uppsett fyrir trommur, gítar, bassa, hljómborð og söng.

Við reynum að uppfæra búnaðinn okkar reglulega en þar sem við erum frjáls félagasamtök er það ekki alltaf hægt. Hafið samband til að fá frekari upplýsingar um núverandi búna

V15

V15 er smærra rými sem hentar vel fyrir einkatíma á gítar, bassa, söng og hljómborð.

Þar er lítill eldhúskrókur með ísskáp, vaski og eldavél ásamt áhöldum. Þar er hægt að hita kaffi, elda létta rétti og ýmislegt annað smálegt.

Aðgengismál V17

Völvufellsmegin eru glænýjar tröppur í toppstandi ásamt handriði. Gott er að koma þangað þegar þarf að aferma bíla með þungum búnaði.

Portmegin (bak við Mini-Market) er hár þröskuldur. Við erum með færanlegan ramp sem hægt er að setja á þröskuldinn svo hljólastólar komist inn.

Rúmgóður fastur rampur er upp á svið.

Halda tónleika í V17

Salurinn okkar rúmar X manns í einu.

Klappstólar eru á staðnum sem hægt er að taka fram fyrir sitjandi tónleika.

Molton-tjöld umlykja salinn svo hann er meira og minna svartur og lítið sólarljós kemst inn um gluggana.

Salerni

Salernið í V17 er mjög rúmgott en hefur ekki handföng.

Salernið í V15 er þrengra og hentar illa fyrir hjólastóla.

Salernin eru kynhlutlaus.

Sérstök verkefni

Við bjóðum tónlistarfólk velkomið að nýta rýmið undir stærri verkefni. Yfirleitt er rýmið laust á daginn en einnig koma dauðir tímar yfir árið þar sem tilvalið er að leigja rýmið ef til dæmis þarf að undirbúa tónleikaferðalag og prufukeyra búnað eða taka upp myndbönd. Hafið samband til að fá tilboð í verkefnið.