Rokkbúðabandalagið (Girls Rock Camp Alliance) er alþjóðlegt tengslanet samtaka sem einblína á listir og félagslegt réttlæti fyrir ungmenni. Aðildarfélög þess fá úrræði og vettvang til að byggja upp samfélag með það að markmiði að styrkja hreyfingu fyrir sameiginlegt frelsi.
Félögin má finna úti um allan heim; í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Íslandi, Perú, Brasilíu, Austurríki, Þýskalandi, Japan og fleiri löndum. Við sækjum oft ráðstefnur á þeirra vegum til að kynnast öðrum félagasamtökum og læra nánar um aðferðafræði GRCA. Á ráðstefnuna mæta árlega yfir 150 einstaklingar frá fjölmörgum rokkbúðum til að deila reynslu sinni og hugmyndum, styrkja samstarfsböndin á milli samtaka, fræðast um nýjar nálganir í starfinu og styðja við stofnun nýrra rokkbúða víðsvegar um heiminn.
Lesa meira um Rokkbúðabandalagið


