Saga samtakanna

Læti! tónlist hét áður Stelpur rokka!

Læti! eru sjálfboðaliðarekin samtök sem starfa af femínískri hugsjón við að efla ungar stelpur (sís og trans), trans stráka og kynsegin og intersex ungmennni í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf.

Kjarninn í starfinu eru rokksumarbúðirnar, þar sem við búum til öruggara rými fyrir þátttakendur að læra á hljóðfæri og syngja, spila saman í hljómsveit, kynnast farsælum tónlistarfólki, fræðast um ýmsar hliðar tónlistar og jafnréttissbaráttu og koma fram á lokatónleikum fyrir framan fullan sal vina og fjölskyldu.

Alls hafa yfir 1.300 þátttakendur tekið þátt í rokkbúðum samtakanna síðastliðin 12 ár og myndað tæplega 30 hljómsveitir. Hjá okkur öðlast þátttakendur aukið sjálfstraust, frumkvæði og þor með því að starfa saman og virkja eigin sköpunarhæfileika. Með starfi okkar erum við að byggja upp mikilvæga fagþekkingu og við erum á réttri leið að því markmiði að verða leiðandi afl í jafnréttismiðuðu tómstundastarfi á Íslandi.


2012

Fyrsta rokksumarið.


2013

Urðum partur af Alþjóðarokkbúðabandalaginu (GRCA). Fórum á ráðstefnu til Bandaríkjanna.


2014


2015

Gerðum samning við Reykjavíkurborg. Héldum fyrstu vetrarrokkbúðirnar. Héldum rokkbúðir á Reykjanesi.


2016

Fyrstu rokkbúðirnar í Tógó. Fyrstu rokkbúðirnar í Grænlandi og Færeyjum. Stelpur rokka! Norðurland félagasamtök stofnuð.

Lesa meira


2017

5 ára afmælishátíð. Gistirokk gegn ofbeldi í Hveragerði.

Lesa meira


2018

Evrópuráðstefna í Serbíu. Rokkbúðir á Patreksfirði og á Egilsstöðum. Stelpur rokka! Austurland félagasamtök stofnuð. Alþjóðlegar rokkbúðir í Berlin.

Lesa meira


2019

Þjórshátíð. Alþjóðlegar rokkbúðir á Hvanneyri. Ráðstefna í Noregi.

Lesa meira


2020-2021

Tónlistarmiðstöð stofnuð í Völvufelli. Jafnréttisviðurkenning.

Lesa meira


2022

Nafnabreytingaferli hefst. Girls Rock London koma í heimsókn. 10 ára afmælishátíð. Ráðstefna Erasmus+ í Oslo.

Lesa meira


2023

Raftónlistarnámskeið hefjast. Pólsk samtök taka þátt í rokkbúðum fullorðinna á Íslandi.

Lesa meira

Ársreikningur vegna ársins 2022


2024

Ráðstefna Erasmus+ í Stokkhólmi. Þjálfun í Finnlandi. Þjálfun í Noregi.

Ársyfirlit verður tilbúið 2025

Ársreikningur vegna ársins 2023