Hljóðfærakennsla, söngkennsla og kennsla í raftónlist
Við bjóðum upp á einkakennslu í hljóðfæraleik og söng yfir veturinn. Í tónlistarmiðstöðinni okkar í Breiðholti starfrækjum við óformlegan tónlistarskóla þar sem ÞÚ ræður ferðinni. Hjá okkur eru engin próf! Nemandinn ákveður sjálfur hvers konar áherslur verða í námsefninu og kennari ausir svo úr viskubrunni sínum í takt við þarfir nemandans. Kennarar nota valdeflandi kennsluaðferðir til að styrkja sjálfsöryggi nemandans.
Nemendur velja um raftónlist, söng, hljómborð, gítar, bassa og trommur.
Yngstu nemendur okkar eru 8 ára gamlir. Engin efri aldursmörk!
Í lok misseris býðst nemendum að koma fram á lágstemmdum lokatónleikum fyrir fjölskyldu og vini.
Við reynum eftir bestu getu að lána nemendum hljóðfæri sem ekki eiga sín eigin.
Tímabilið eru 12 vikur og eru tímarnir 10 talsins, 45 mínútur í senn.
Kennslan fer fram í tónlistarmiðstöð okkar að Völvufelli 17.
Við tökum við frístundakorti.
Engin frípláss eru í boði en hægt er að kaupa færri en 10 skipti.

Að byggja upp sjálfstraust
Það að læra á hljóðfæri hjálpar bæði börnum og fullorðnum að þróa með sér sjálfstraust. Mikið er gaman að sjá hæfileika sína skína og ná framförum! Að ná árangri í hljóðfæraleik styrkir trú okkar á eigin getu.

Að tjá sig á skapandi hátt
Tónlistarleg tjáning er einstaklega persónuleg. Hún gerir okkur kleift að beina tilfinningum okkar að tónlistarsköpun, sem hjálpar okkur að skilja tilfinningar okkar betur. Í tímum hjá okkur eru allar tilfinningar velkomnar! Hér má hlægja og hér má gráta.

Að læra aga og einbeitingu gegnum listir
Að læra á hljóðfæri kennir okkur mikilvægi þess að æfa sig. Það er ekki aðeins valdeflandi, heldur kennir þessi reynsla okkur að við getum gert allt sem við viljum! Svo lengi sem við tökumst á við áskoranir lífsins með ákveðni og einbeitingu.

