- gr. Heiti og hlutverk
1.1 Félagið heitir Læti! félagasamtök og hefur aðsetur í Reykjavík. Læti! er óháð félag í þágu almannaheilla og rekið án fjárhagslegs ávinnings.
1.2 Tilgangur félagsins er að vinna að og styðja við fjölbreytt verkefni í þágu jafnréttismála til að valdefla jaðarsett kyn, til dæmis með tónlist, fræðslu og æskulýðsstarfi. Markmið félagsins er að gera konur og einstaklinga af jaðarsettum kynjum sýnileg og að þau njóti viðurkenningar á öllum sviðum samfélagsins, með áherslu á tónlistarheiminum. Félagið leggur áherslu á mannréttindi og vinnur gegn hvers konar mismunun. Verkefni félagsins eiga að efla samfélag og menningu og er markmiðum þess fylgt eftir í takt við áherslur í starfsstefnu þess. Læti! hefur umhverfisvæn sjónarmið að leiðarljósi við alla framkvæmd verkefna.
1.3 Markmiðum sínum hyggst félagið einkum ná með því að:
Skapa konum og fólki sem tilheyrir jaðarsettum kynjum félagslegan og tónlistarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín.
Vinna að jafnri stöðu allra kynja, svo og fræðslu um reynslu kvenna og fólki sem tilheyrir jaðarsettum kynjum og sérkenni, eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni, svo sem í fjölmiðlum, á tónleikum og í opinberu fræðslukerfi.
Starfa með öðrum félögum um málefni sem samrýmast tilgangi þess. Félagið tekur virkan og markvissan þátt í jafnréttismálum, hvort sem er með samstarfi eða hvatningu til framkvæmda og annarra verkefna.
Bjóða upp einstaklingsmiðaða og valdeflandi tónlistarkennslu.
- gr. Félagsaðild
Félagi getur hver sá gerst sem vill styðja félagið og vinna að markmiðum þess. Nýir og óskráðir félagar eru velkomnir, en skulu skrá sig eigi síðar en við upphaf þátttöku sinnar í starfi félagsins. Allir skráðir félagar hafa atkvæðisrétt á aðalfundi, óháð því hvort félagagjöld hafa verið greidd.
Stjórn heldur félagatal með lágmarks upplýsingum að fengnu upplýstu samþykki skráðra félaga. Félagatal er til afnota fyrir stjórn og starfsfólk félagsins og er það bundið þagnarskyldu um það.
Allir félagar hafa áheyrnar- og tillögurétt á fundum félagsins en atkvæðisréttur er eingöngu stjórnar á stjórnarfundum og félaga á almennum félagsfundum.
- gr. Stjórn
Stjórn félagsins skal skipuð að minnsta kosti þremur félagsmeðlimum; forsvarsfulltrúa, gjaldkera og meðstjórnanda. Heimilt er að kjósa allt að þrjá varamenn. Stjórnar- og varamenn skulu kosnir til 2 ára í senn og kosning fer fram á aðalfundi. Stjórnarmenn funda mánaðarlega. Stjórnarmenn skulu ekki sitja í sínu hlutverki lengur en 4 ár.
Þurfi meðlimur stjórnar að víkja á miðju starfsári skulu stjórnarmenn kjósa einn úr hópi félagsmeðlima til þess að fylla í skarð stjórnarmeðlims þar til að næsta aðalfundi kemur.
Hlutverk meðstjórnanda er að hlaupa í skarðið fyrir aðra fulltrúa í forföllum þeirra, svo sem taka forystu ef forsvarsfulltrúi forfallast, sjá um ritun fundargerða og skjala komist meðstjórnandi ekki í þau verkefni, sinna gjaldkerastörfum í fjarveru gjaldkera o.s.frv.
- gr. Framkvæmdastjórn
Daglegan rekstur félagsins annast framkvæmdarstjórn sem skipuð er af framkvæmdastýri og verkefnastýri tónlistarmiðstöðvar.
- gr. Firmaritun
Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar og framkvæmdastjórnar. Prókúru hafa gjaldkeri, framkvæmdastýri og verkefnastýri tónlistarmiðstöðvar.
- gr. Starfstímabil
Starfstímabil er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn og framkvæmdastjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagar mega vera þátttakendur á aðalfundi.
- gr. Félagsgjald og fjármögnun
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi ár hvert og skulu innheimt á ársgrundvelli. Öllum félagsmeðlimum frjálst að borga minna eða meira. Engum er vísað úr félaginu séu félagsgjöld ógreidd.
Félagið getur aflað annarra tekna með hefðbundnum fjáröflunaraðferðum, svo sem með frjálsum framlögum, styrkjum t.d. úr opinberum sjóðum, með því að standa að viðburðum og frekara starfi sem samræmist tilgangi og markmiðum félagsins.
Fjáröflun getur hvoru tveggja tengst tilteknum verkefnum eða viðburðum eða verið almenn fjáröflun í þágu heildarhagsmuna félagsins enda samræmist hún tilgangi þess og markmiðum.
Félagið er rekið án fjárhagslegs ávinnings fyrir félaga og stjórn. Fjármunum er eingöngu ráðstafað í verkefni í tengslum við markmið og tilgang félagsins. Tilgangur félagsins er ófjárhagslegur þótt innheimt verði félagsgjöld og fjármunum safnað til að fjármagna einstök verkefni í takt við tilgang og markmið félagsins.
- gr. Aðalfundur
Allir félagar mega taka þátt á aðalfundi. Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. september ár hvert. Einfaldur meirihluti viðstaddra félaga ræður úrslitum mála.
- gr. Dagskrá og boðun aðalfundar
Boða skal til aðalfundar með að minnsta kosti eins vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Ákvörðun þóknunar til stjórnar
- Kosning stjórnar
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Aðalfundi er heimilt að fresta afgreiðslu tiltekinna málefna og vísa þeim til framhaldsaðalfundar að tillögu fundarins. Skal það gert ef upp koma atriði sem þarfnast frekari skoðunar, útlistunar eða ótækt þykir að afgreiða mál vegna ófyrirséðra aðstæðna.
- gr. Rekstrarafgangur/-hagnaður og eignir
Rekstrarafgangi eða rekstrarhagnaði skal varið í samræmi við tilgang félagsins. Félagið er hvorki rekið til fjárhagslegs ávinnings stjórnar né félagsmanna. Eignir félagsins, hverjar sem þær kunna að vera, skulu nýttar í samræmi við tilgang og markmið félagsins. Félagið sjálft er ekki hagnaðardrifið en fjármuna er þörf til að uppfylla tilgang og markmið þess.
- gr. Slit
Ákvörðun um slit félags verður tekin á stjórnarfundi með auknum meirihluta tveimur þriðju stjórnarmeðlima. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Ber þá að eyða félagaskránni, en önnur gögn og eignir félagsins renna til skyldra félagasamtaka, þó ekki fyrr en eitt ár er liðið frá aðalfundi.

