Hljómsveitatímar

Lærðu á hljóðfæri

Hér færðu hlutverk! Þú velur hljóðfæri og sérð um að spila eða syngja með hljómsveitinni þinni.

Lærðu að semja lag

Hljómsveitin semur lagið saman. Leiðbeinandinn er innan handar ef þarf, en frumsköpunin er þó alfarið í höndum hljómsveitarmeðlima!

Lærðu að koma fram á tónleikum

Í lok misseris eru tónleikar þar sem nemendur koma fram og sýna vinum og fjölskyldu afraksturinn.

Umsagnir

Ragnheiður Ösp, úr hljómsveitinni Þrjár fiðlur og eitt trompett frá vorönn 2020

Rokkrúllettan er alveg frábær. Ég beið alla vikuna eftir æfingu og naut þess að spila með frábærum einstaklingum.

Esther Þorvaldsdóttir, úr hljómveitinni Jæja Valgerður frá haustönn 2020.

Aldrei hefði ég getað trúað því hvernig þetta námskeið breytti lífi mínu til hins betra. Hljómsveitaæfingar eru langbesti partur vikunnar! Við erum enn að rokka saman einu sinni í viku, fjórum árum síðar.

S. Andrea Ásgeirsdóttir, hljómsveitaþátttakandi!

Ég gef hljómsveitatímum mín bestu meðmæli. Það er svo mikil valdefling að mæta á æfingu og jafnvel læra á nýtt hljóðfæri sem ég hef aldrei spilað á áður og svo bara láta vaða! Fullkomnunaráráttann fær að fjúka út um gluggann og það skemmir ekki fyrir hvað þetta er rosalega skemmtilegt. Nú er ég búin að prófa að spila á öll hljóðfærin í hljómsveitinni!