Hvar eruð þið til húsa?
Tónlistarmiðstöðin okkar er í Völvufelli 17, 111 Reykjavík. Einnig höfum við til umráða smærra rými í Völvufelli 15. Nánar um rýmin.
Rokkbúðirnar okkar í Reykjavík eru haldnar í Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík.
Af hverju er starfið aðeins fyrir stelpur, trans og kynsegin einstaklinga?
Enn er mikið verk að vinna til að leiðrétta kynjahalla í íslensku tónlistarlífi. Staðalímyndir í rokk og popp myndböndum og tímaritum sýna konur fyrst og fremst sem óvirk kynferðisleg viðföng hins karllæga augnaráðs en ekki sem skapandi og sjálfstæða gerendur. Hlutfall kvenna, trans fólks og kynsegin einstaklinga á tónlistarhátíðum á borð við Iceland Airwaves, sem skráðra höfunda í STEF, í stjórnum tónlistartengdra stofnanna og fyrirtækja og almennt sem sýnilegra tónlistarmanna á Íslandi, er afar lágt. Stelpur, trans krakkar og kynsegin einstaklingar eru ólíklegri en cis strákar til þess að byrja að semja og spila sína eigin tónlist á unglingsárunum og stofna hljómsveitir. Margir samverkandi samfélagslegir þættir gera það að verkum að stelpur, trans krakkar og kynsegin einstaklingar eru líklegri til að skorta sjálfstraust til að koma fram á sviði, taka sér rými og vera með hávaða. Þau eru líklegri til þess að finnast þau þurfa að kunna að spila óaðfinnanlega á hljóðfæri áður en þau geta farið á svið og tekið sér rými. Þau eru líklegri til að stunda strangara sjálfseftirlit en cis strákar á vissum sviðum. Sjálfseftirlitið hefur hamlandi áhrif á sjálfstjáningu. Við viljum breyta þessari kynjuðu menningu.
Hugmyndafræði okkar snýst um að skapa öruggara rými þar sem þátttakendum er gefið tækifæri til þess að spegla sig og sína hæfileika í öflugum femínískum fyrirmyndum. Kynjaskiptingin gerir það að verkum að þátttakendur þurfa ekki að óttast að sís strákar geri lítið úr þeim og eyða ekki orku í að keppa við þá um rými eða athygli. Þátttakendur fá þann stuðning sem þeir þurfa og geta viðrað skoðanir sínar og gert mistök án þess að eiga það á hættu að vera dæmdar á forsendu kyngervis síns. Það er því miður of oft þannig að í blönduðum hópum þar sem fer fram listsköpun fá stelpur og trans og kynsegin krakkar ekki nægilegt rými til að þora að gefa af sér og vera berskjölduð fyrir framan aðra. Við erum meðvituð um þetta og í starfinu okkar sköpum við rými þar sem þátttakendur fá næði til þess að einbeita sér að því að rækta hæfileika sína, og til að gera eitthvað sem þeir eru ekki vanir að gera; að spila á hljóðfæri og vera í hljómsveit, öskra, gera mistök, ögra og pönkast.
Af hverju þarf ég að velja hvað ég borga í þátttökugjald í rokkbúðum?
Við vitum að ekki stendur öllum ungmennum á Íslandi jafnt til boða að sækja rokkbúðirnar sökum fjárhags, félagslegrar stöðu eða annarra breyta. Þess vegna leggjum við sérstakan metnað í að vera eitt af fáum verkefnum á Íslandi sem vísar engum þátttakanda frá sumarnámskeiðum vegna fjárskorts. Við leggjum áherslu á að frí eða niðurgreidd pláss fari til þeirra sem mest þurfa á því að halda og eru í minnihluta þátttakenda í rokkbúðunum. Efnaminni þátttakendur og þátttakendur með annað móðurmál en íslensku hafa forgang í frí pláss.
Af hverju eru bara konur, trans fólk og kynsegin einstaklingar sem kenna á hljóðfæri og stýra hljómsveitum í starfinu?
Mikilvægur hluti af starfinu okkar er að þátttakendur vinni náið með fyrirmyndum sem spegla þeirra eigin kyngervi. Það er mikilvægt að ungmenni og fullorðnir þátttakendur hafi aðgang að fjölbreyttum fyrirmyndum sem þau geta speglað sig í. Skortur á fyrirmyndum kvenna, trans fólks og kynsegin einstaklinga í tónlistarheiminum getur haft áhrif á sjálfstraust þeirra í tónlist.
Við viljum sýna þátttakendum að öll geti gegnt öllum hlutverkum í tónlist, hvort sem það er að spila á hljóðfæri, tengja tæki eða taka upp tónleika. Í starfinu okkar leggjum við áherslu á að skapa sýnileika fyrir fjölbreyttar fyrirmyndir.
Starfið okkar er einnig valdeflandi fyrir sjálfboðaliða, sem fá tækifæri til að víkka þægindarammann, öðlast reynslu í kennslu og tónlistarsköpun og fá innsýn í rekstur verkefna byggð á jafnréttisgildum.
Eru sís strákar ekki leyfðir í starfinu?
Þótt sís strákar taki ekki þátt í þeim viðburðum þar sem við bjóðum þátttakendum upp á öruggara rými, þá hafa margir lagt sitt af mörkum til að styðja samtökin. Sís strákar hafa t.d. gefið okkur hljóðfæri, aðstoðað við viðgerðir á hljóðfærum, smíðað ramp upp á svið og stiga upp í lagerrýmið. Við metum framlag þeirra og þökkum fyrir stuðninginn, þó það falli utan þeirra viðburða sem eru sérstaklega hönnuð fyrir aðra hópa.
Þarf þátttakandi í rokkbúðum eða hljómsveitatímum að hafa reynslu af hljóðfæraleik?
Engin hljóðfærakunnátta eða reynsla af tónlistarstarfi er nauðsynleg til að skrá sig í rokkbúðir eða hljómsveitatíma. Í rokkbúðum bjóðum við upp á byrjendatíma á öll hljóðfæri. Við mælum með að þátttakendur í hljómsveitatímum á veturna hafi smá grunn á hljóðfærið sitt, eða taki einkatíma meðfram hljómsveitatímum, en það er ekki nauðsynlegt.
Er gott aðgengi fyrir þátttakendur með hreyfihömlun í rokkbúðunum?
Rokkbúðir í Reykjavík eru haldnar í Tónlistarskóla Sigursveins í Hraunbergi. Húsið er á tveimur hæðum en meirihluti starfsins fer fram á fyrstu hæðinni, sem er aðgengileg. Hægt er að lesa nánar um aðgengi í Tónskólanum hér.
Er gott aðgengi fyrir þátttakendur með hreyfihömlun í vetrarstarfinu?
Vetrarstarfið fer fram í tónlistarmiðstöð okkar í Völvufelli 17. Hægt er að setja færanlegan ramp yfir þröskuldinn portmegin til að komast inn og rampur er á sviðinu. Hægt er að lesa nánar um aðgengi í Völvufelli hér.
Fæ ég þátttökugjöldin endurgreidd ef ég þarf að hætta við þátttöku í rokkbúðunum?
Við endurgreiðum að öllu leyti þátttökugjöld í rokkbúðunum svo fremi sem okkur tekst að láta plássið ganga til annars þátttakanda áður en rokkbúðirnar hefjast.
Ef ekki tekst að finna þátttakanda í plássið þá er helmingur gjaldsins endurgreiddur ef látið er vita um forföll 5 dögum fyrir búðirnar (ef búðir byrja á mánudegi þarf að láta vita í síðasta lagi á miðvikudegi til að geta búist við helmings- eða fullri endurgreiðslu). Ef látið er vita innan 5 daga fyrir búðir og ekki tekst að finna annan þátttakanda er ekki unnt að endurgreiða nema við mjög sérstakar aðstæður.
Þarf ég að koma með eigið hljóðfæri í rokkbúðirnar eða hljómsveitatíma?
Við útvegum hljóðfæri handa öllum þátttakendum en öllum er frjálst að koma með sín eigin hljóðfæri. Sum hljóðfæri eru af skornum skammti sem er ástæða þess að við spyrjum hvort viðkomandi geti mætt með eigið hljóðfæri í skráningarforminu.
Ég fíla ekki rokktónlist. Eru rokkbúðirnar fyrir mig?
Í rokkbúðunum spilum við og semjum fjölbreytta tónlist. Hljómsveitirnar hjá okkur semja allskonar tónlist, popp, folk, rapp, pönk, raftónlist og allt mögulegt. Við gerum okkar besta til að raða þátttakendum í hljómsveitir eftir tónlistarsmekk.
Ég kemst ekki alla dagana sem rokkbúðirnar eru. Get ég samt verið með?
Við ætlumst til þess að skráðir þátttakendur mæti alla dagana nema eitthvað ófyrirséð komi upp á. Það má þó hafa samband við okkur fyrir skráningu til að athuga hvort að forföll í hálfan dag gangi upp. Ef þátttakandi sér fram á að komast ekki á lokatónleikana er ekki hægt að skrá þátttakanda í rokkbúðirnar.
Er stuðningur til staðar fyrir þátttakendur með sérþarfir?
Við reynum okkar besta við að koma til móts við sérþarfir allra þátttakenda. Við viljum mæta hverjum þátttakanda þar sem hann er staddur. Við leggjum áherslu á fjölbreytilegar kennsluaðferðir, til að geta komið sem best til móts við sem flesta. Í hverjum búðum er starfandi ófaglærður rokkráðgjafi. Hlutverk hans er að veita þátttakendum með sérþarfir eða þátttakendum sem glíma við andlega og líkamlega vanlíðan aukinn stuðning. Við leggjum áherslu á opin samskipti við foreldra þátttakenda og óskum eftir öllum þeim upplýsingum sem geta hjálpað okkur við að styðja sem best við hvern þátttakanda.

