Hvernig er að vera sjálfboðaliði í Læti!?
Í samtökunum er sterkt teymi sjálfboðaliða. Við hittumst reglulega og skipuleggjum starfið í sameiningu og leggjum línurnar sem framkvæmdateymi vinnur eftir. Einnig eru mörg tækifæri til að koma í þjálfun og læra um áherslur í starfinu og aðferðafræði sem við förum eftir. Samtökin tilheyra Alþjóðarokkbúðasambandinu GRCA og við vinnum gjarna með öðrum samtökum erlendis sem tilheyra þessum regnhlífasamtökum.
Sjálfboðaliðar eru fyrirmyndir
Þótt tónlist sé ein af okkar meginstoðum þá eru alls ekkert allir sjálfboðaliðarnir okkar með tónlistarbakgrunn. Við leitum að fólki með áhuga á samfélagslegum málefnum og þeim sem elska að vinna að valdeflingu, bæði barna og fullorðinna.
Þekkingin sem sjálfboðaliðar okkar koma með inn í samtökin hefur gjarna verið í formi fræðslu um fötlunarfordóma, andrasisma, trans málefni, aktívisma, umhverfismál, o.m.fl. Einnig hafa sjálfboðaliðar bæst við hópinn sem hjálpa okkur með tungumálaþekkingu sinni og gera okkur þannig kleift að þýða fræðsluefni á önnur tungumál eða hjálpa til við að túlka fyrir þátttakendur sem eru að sækja um alþjóðlega vernd.
Mikilvægast af öllu er að sjálfboðaliðarnir okkar séu góðar fyrirmyndir fyrir kvenkyns, kynsegin, trans og intersex þátttakendur.



Hefðbundnir sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar sem vinna með þátttakendum eru konur eða einstaklingar sem tilheyra jaðarsettum kynjum. Þeir vinna í rokkbúðum og taka þátt í alls kyns fræðslufundum og þjálfunarviðburðum. Einnig geta sjálfboðaliðar tekið þátt í ýmsum nefndum og haft þannig áhrif á starfið.
Nýliðar eru velkomnir á mánaðarfundina okkar þar sem við leggjum höfuðin í bleyti og finnum skemmtileg verkefni.
Skipuleggjendur
Í samtökunum starfar stjórn sjálfboðaliða sem sér um að taka allar stærstu og mikilvægustu ákvarðanirnar og móta stefnuna í samstarfi við sjálfboðaliða. Í stjórninni eru öll jöfn og ekkert atkvæði gildir meira en annað. Einnig starfar framkvæmdastjórn innan samtakanna sem sér til þess að öll verkefni fara í sína ferla og starfið frábærlega vel.
Stjórnin styður við framkvæmdastjórn þegar þess þarf og ákvarðar stöðugildi hennar.
Kennarar
Um tónlistarkennsluna sér einvalalið tónlistarsnillinga sem læra valdeflandi kennsluaðferðir á þjálfunarviðburðum samtakanna. Allir kennarar okkar brenna fyrir jafnréttismálum og eru feminískar fyrirmyndir fyrir nemendur sína.

Langar þig að vera með?
Ef þið langar að ganga til liðs við hópinn bendum við þér á að senda okkur tölvupóst eða mæta á opna viðburði.

