Hjálpaðu okkur!
Við erum alltaf á höttunum á eftir notuðum hljóðfærum í góðu standi, sem og öðrum græjum. Við þiggjum með þökkum hvers kyns gjafir sem hjálpa okkur að sinna starfinu. Hafðu samband ef þig langar að veita okkur hljóðfæragjöf.
Hvað vantar okkur?
Bassar – Okkur skortir bassa af öllum stærðum og gerðum.
Hljómborð – Okkur skortir hljómborð í góðu standi.
Gítarar – Við eigum nokkuð marga gítara en gætum þegið fleiri sem henta fyrir mjög ungar gítarstjörnur.
Trommusett – Flest settin okkar eru of þung fyrir hið mikla rót sem fylgir rokkbúðastarfinu og við erum því að vinna í því að skipta þeim þungu út fyrir léttari sett. Við þiggjum einnig flott hardware í góðu standi.
XLR snúrur – Okkur vantar fleiri XLR!



