Valdeflandi tónlistarnám!
Við bjóðum upp á alls kyns skemmtilegheit í starfinu okkar. Til dæmis höldum við reglulega vinnustofur fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref í tónlist sem og þau sem eru fagfólk í bransanum. Stundum höldum við styttri námskeið, t.d. sex vikna raftónlistarnámskeið fyrir byrjendur annars vegar og lengra komin hins vegar.
Þó eru þrjár meginstoðir í tónlistarnáminu sem við bjóðum upp á; rokkbúðir, einkatímar og hljómsveitatímar.
Námið er opið kvenkyns, kynsegin, trans og intersex einstaklingum og er skipt eftir aldri.

Rokkbúðir
Í Reykjavík eru rokkbúðir fyrir 10-12 ára, 13-16 ára og 18+ á hverju ári. Einnig hafa verið haldnar rokkbúðir á landsbyggðinni.

Einkatímar
Í tónlistarmiðstöðinni okkar í Breiðholti bjóðum við upp á einkatíma yfir veturinn fyrir 8 ára og eldri, þar með talið fullorðið fólk!

Hljómsveitatímar
Í Breiðholti er hægt að skrá sig í hljómsveit sem hittist einu sinni í viku yfir haust- og vormisseri, fyrir 10 ára og eldri, einnig fullorðið fólk.
