Stelpur rokka! verður að Læti! tónlist
Læti!, áður þekkt sem Stelpur rokka!, eru félagasamtök sem hafa frá stofnun 2012 stuðlað að valdeflingu ungmenna í gegnum tónlist og samfélagslegri þátttöku. Við bjóðum upp á öruggari rými fyrir stelpur, stálp og trans krakka, óháð bakgrunni, þar sem þau geta tjáð sig, þróað hæfileika sína og myndað tengsl í gegnum tónlistarsköpun. Nú bjóðum við einnig upp á viðburði fyrir fullorðna þátttakendur!
Markmið okkar er að stuðla að fjölbreytileika og jafnrétti í tónlistarlífinu og skapa vettvang þar sem ungmenni finna sína rödd og styrkja sjálfstraust sitt. Við trúum á kraftinn í tónlist sem verkfæri fyrir félagslegt réttlæti og sjálfstyrkingu.
Félagasamtökin
Samtökunum er stýrt af stjórn, framkvæmdastjórn og fjölda sjálfboðaliða. Við rekum tónlistarskóla á veturna og höldum rokkbúðir á sumrin.
Valdeflandi tónlistarkennsla
Við bjóðum upp á mismunandi leiðir til að læra tónlist. Námskeiðin okkar eru fyrir börn allt niður í 8 ára og upp í rammfullorðið fólk, því það er aldrei of seint að byrja að læra tónlist!
Hugmyndafræðin
Við leggjum áherslu á að skapa öruggara og valdeflandi rými fyrir stelpur og einstaklinga sem tilheyra jaðarsettum kynjum.

Sagan okkar
Læti! hóf starfsemi sína árið 2012 undir nafninu Stelpur rokka! með það að markmiði að valdefla stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Í upphafi voru starfræktar rokkbúðir fyrir stelpur víðsvegar um landið, þar sem þær lærðu að spila hljóðfæri og stofna hljómsveitir. Með tímanum þróuðust samtökin og urðu að vettvangi fyrir önnur ungmenni af jaðarsettum kynjum, þar sem tónlist og samfélagsleg þátttaka mynda grundvöll fyrir jafnrétti og sjálfstyrkingu. Nafnabreytingin yfir í Læti! endurspeglar þessa víðari nálgun og opnun fyrir fjölbreytileika þátttakenda.
