Sjálfbærnistefna

Sjálfbærni er mikilvægur hluti af okkar starfsemi og við stefnum að því að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið í gegnum tónlist, menntun og valdeflingu.

Jafnrétti

Jafnréttismál eru hornsteinn starfs okkar. Læti! vinnur að því að tryggja jafnrétti kvenna og einstaklinga sem tilheyra jaðarsettum kynjum innan tónlistar og menningarlífs. Við leggjum sérstaka áherslu á að skapa öruggari rými fyrir stelpur, konur og trans, kynsegin og intersex einstaklinga, þar sem þau geta þróað hæfileika sína og fengið tækifæri til að vaxa sem tónlistarfólk og leiðtogar.

  • Við tryggjum launajafnrétti og virðum jafnræði í öllum samskiptum og ráðningum.
  • Við tryggjum að jaðarsett kyn séu sýnileg og virt í öllu efni sem við framleiðum og dreifum.
  • Við vinnum markvisst að því að auka fjölbreytni og jafna aðgengi í tónlistariðnaðinum með sérstökum verkefnum og menntunartækifærum fyrir alla aldurshópa.
  • Við tökum virkan þátt í jafnréttisumræðu og fræðum um hindranir sem kynjaðar og jaðarsettar manneskjur mæta í tónlist.

Inngilding

Við trúum á tónlist sem afl til samfélagslegra breytinga og leggjum sérstaka áherslu á að ungt fólk hafi jafnan aðgang að tónlistarstarfi óháð kyni, uppruna, fötlun, efnahag eða félagslegri stöðu.

  • Við bjóðum frí og niðurgreidd pláss í rokkbúðum okkar.
  • Við tryggjum aðgengi fyrir fatlað fólk í rýmum okkar og viðburðum.
  • Við vinnum með fjölbreyttum hópum og stöndum fyrir menningarlegum fjölbreytileika innan tónlistarlífsins.
  • Við notum skýra og aðgengilega samskiptamiðla, bæði á íslensku og ensku, og veitum þátttakendum stuðning eftir þörfum.

Umhverfisvernd

Við leggjum áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif starfsemi okkar og stuðlum að sjálfbærni í tónlistar- og viðburðahaldi.

  • Við drögum úr sóun og endurnýtum hljóðfæri, búnað og önnur aðföng eins mikið og hægt er.
  • Við vinnum með umhverfisvænum birgjum og veljum sjálfbæra ferðamöguleika þegar hægt er.
  • Við hvetjum þátttakendur til að nota fjölnota áhöld í tónlistarstarfi og á viðburðum.
  • Við fræðum þátttakendur um umhverfisáhrif tónlistariðnaðarins og hvernig hægt sé að starfa á vistvænan hátt.
  • Við vinnum að kolefnisjöfnun ferða okkar og viðburða þegar það er mögulegt.

Framkvæmd og endurskoðun stefnunnar

Sjálfbærnistefna Læti! er lifandi skjal sem verður reglulega yfirfarið og uppfært í samræmi við nýjar áskoranir og tækifæri. Við leggjum áherslu á gagnsæi og ábyrgð í allri okkar vinnu og hvetjum bæði þátttakendur og samstarfsaðila til að taka þátt í að þróa og bæta sjálfbærnistefnuna okkar.

Með því að leggja áherslu á jafnrétti, inngildingu og umhverfisvernd getum við stuðlað að sterkari og sjálfbærari tónlistarsenu fyrir komandi kynslóðir. 🎶✨