Stelpur rokka! og Reykjavíkurborg undirrituðu samstarfssamning til þriggja ára í febrúar 2015, endurnýjuðu samning í janúar 2018, aftur í janúar 2021 og svo 2024.
Í samningi segir m.a. að starfsemi samtakanna falli vel að mannréttindastefnu borgarinnar sem m.a kveður á um að börnum og unglingum sé veitt hvatning til að rækta hæfileika sína og persónuþroska án hamlandi áhrifa hefðbundinna kynjamynda.


Stuðningur skiptir okkur öllu máli
Læti! reiða sig á stuðning frá margvíslegum stofnunum, sjóðum, fyrirtækjum og samtökum ár hvert. Styrktar- og stuðningsaðilar okkar aðstoða okkur við fjáröflun, hljóðfæralán, ferðir á ráðstefnu, kynningarmál, fæði og margvíslegt fleira. Við þökkum styrktar- og stuðningsaðilum okkar gegnum árin:
Reykjavíkurborg, Erasmus+, Tónskóli Sigursveins, Velferðarráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Uppbyggingarsjóður Norðurlands, Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra, Menningarsjóður Akureyrar, Uppbyggingarsjóður Austurlands, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður.
Arion Banki á Egilsstöðum, BM Vallá, Borgarbókasöfn, Dominos, Druslugangan, Efla verkfræðistofa, Exton, Hamborgarafabrikkan, Hitt húsið, Hljóðfærahúsið, Húsið, Icelandair, Joe and the Juice, Jónína Björg Magnúsdóttir, Kex hostel, KÍTÓN, Lemon, Listaháskóli Íslands, Loft hostel, Menningarhúsið Rósenborg, Miðberg, Native Instruments, Nexus, Samtökin 78, Sláturhúsið menningarmiðstöð, Smyril line, Skaftfell, Sól í Tógó, Tabú, Tónastöðin, Tónklasinn, Tónlistarskólinn á Seyðisfirði, Tónlistarskóli Sandgerðis, Trans Ísland, TÞM, Valdís Björt Guðmundsdóttir og aðrir höfundar ljóðabókarinnar Innvols, Verkfræðistofan Tröð.
Exton og Hljóðfærahúsið eiga miklar þakkir skyldar fyrir frábæran græjustuðning. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem hafa gefið hljóðfæri.
Stuðningsaðilar Tógósöfnunar fá hlýjar þakkir fyrir fallega samstöðu.
