Frjáls framlög

Að gefa til okkar

Öll frjáls framlög til okkar verða nýtt í eitthvað fallegt. Árin 2020-2025 eru söfnunarár fyrir rokkbúðir í Tógó, Vestur-Afríku. Vinasamtök okkar þar taka á móti sjálfboðaliðum og hljóðfærum frá okkur á hverju ári. Framlögin fara einnig í ferðakostnað vegna tónlistarkennara frá Tógó til að sækja fræðslu á GRCA ráðstefnum og í þjálfunarbúðum eða koma til Íslands til að læra um starfið hér á landi. Síðan árið 2016 höfum við byggt upp mikilvægt æskulýðstarf fyrir stúlkur í Tógó.

Girls Rock Togo

Valdefling kvenna er eitt af meginmarkmiðum rokkbúðanna í Tógó. Þar læra stúlkurnar á hljóðfæri, söng og dans milli þess að fá öruggt rými til að tjá skoðanir sínar á þeim málefnum sem brenna á þeim. Kvenréttindi af ýmsu tagi eru mikið rædd. Verkefnið gerir ungum tógólískum stúlkum kleift að hafa rými til tónlistarsköpunar, rými sem er oftast ætlað drengjum, og skapa þar jákvætt, styðjandi og hvetjandi andrúmsloft þar sem þær geta tjáð sig frjálslega. Í búðunum fá tógóskar stúlkur að láta sína eigin rödd heyrast, til að þora að taka áhættu og mistakast og til að setja sig í nýjar og spennandi aðstæður.