Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Stelpur rokka!  / Læti!

Samþykkt í febrúar 2019. Uppfært í júní 2023 með tilliti til nafnabreytingar. Stafsetning og málfar uppfært í september 2024.

Stelpur rokka! / Læti! Hafa útbúið persónuverndarstefnu sem nær yfir söfnun okkar, notkun, birtingu, flutning og geymslu á upplýsingunum þínum eða ungmennis á þínum vegum. Gefðu þér tíma til að kynna þér vinnubrögð okkar þegar kemur að persónuvernd og hafðu samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, á netfangið info@stelpurrokka.is 

Þú getur skoðað og notið vefsvæðisins okkar án þess að gefa upp nokkrar persónulegar upplýsingar, þar með talið netfangið þitt. En ef þú skilur eftir persónuupplýsingar hér geturðu verið viss um að við munum ekki selja, leigja eða deila persónuupplýsingunum þínum með neinum öðrum, nema þá aðeins að þeir geti hjálpað okkur að veita þér þá þjónustu sem þú baðst um, sbr. umfjöllun fyrir neðan.

Söfnun og notkun persónugreinanlegra upplýsinga

Persónugreinanlegar upplýsingar eru gögn sem nota má til að bera kennsl á eða hafa samband við tiltekinn einstakling.

Þið gætuð verið beðin um að gefa upp persónugreinanlegar upplýsingar hvenær sem þið eigið í samskiptum við samtökin.

Samtökin notar persónugreinanlegar upplýsingar í samræmi við þessa persónuverndarstefnu.

Þú þarft ekki að veita þær persónugreinanlegu upplýsingar sem við höfum óskað eftir en ef þú kýst að gera það ekki getum við mögulega ekki afgreitt umsóknir, veitt þér þjónustu né heldur brugðist við fyrirspurnum sem þú kannt að senda okkur.

Hér eru dæmi um þær tegundir persónugreinanlegra upplýsinga sem samtökin safna og nota.

Þær persónugreinanlegu upplýsingar sem við söfnum:

Þegar þú skráir þig eða einstakling undir lögaldri á þínum vegum í rokkbúðir eða önnur námskeið eða viðburði á okkar vegum eða hefur samband við okkur, kunnum við að safna ýmsum upplýsingum, þ.á.m. nafninu þínu, kennitölu, póstfangi, heimilisfangi, símanúmeri, netfangi, heppilegum samskiptamáta og öðrum tilfallandi upplýsingum. 

Notkun okkar á persónugreinanlegum upplýsingum um þig:

  • Þær persónugreinanlegu upplýsingar sem við söfnum gera okkur kleift að senda þér nýjustu fréttir og upplýsingar um væntanlega viðburði. Viljirðu ekki vera á póstlista okkar geturðu afþakkað hvenær sem er með því að senda tölvupóst á netfangið info@stelpurrokka.is
  • Við munum nota persónugreinanlegar upplýsingar þínar, svo sem fæðingardag þinn og ár, m.a. til að staðfesta aldur og ákvarða viðeigandi þjónustu fyrir þig. 
  • Annað veifið kunnum við að nota persónugreinanlegar upplýsingar um þig til að koma betur til móts við þátttöku þína eða ungmennis á þínum vegum í starfi samtakanna, t.d. hvað varðar sérstakar þarfir eða óskir sem eru forsenda þátttöku þinnar eða ungmennis á þínum vegum í rokkbúðum eða öðrum viðburðum á vegum samtakanna. 

Við samkeyrum aldrei persónuupplýsingarnar þínar eða ungmennis á þínum vegum við aðra gagnagrunna. 

Vefsíða Samtakanna

Vefsíða samtakanna www.stelpurrokka.is, safnar ekki sjálfkrafa neinum persónurekjanlegum gögnum um notkun og notendur. Umferð um vefsvæðið er mæld, en þær upplýsingar um notkun sem við höfum aðgang að eru ekki persónurekjanlegar.

Upplýsingar birtar þriðju aðilum

Stelpur rokka! / Læti! miðlar aldrei persónugreinanlegar upplýsingum til þriðja aðila, nema með fullu samþykki viðkomandi og að  um sé að ræða þjónustuaðila, t.d. stuðningsfulltrúa frá öðrum samtökum eða annarra sem munu koma til með að þjónusta þátttakendur í rokkbúðunum. 

Nauðsynlegt gæti verið – samkvæmt lögum, lagaferlum, málaferlum og/eða beiðni frá opinberum aðilum–að samtökin gefi upp persónugreinanlegar upplýsingar þínar. Við gefum upp upplýsingar um þig ef við teljum það nauðsynlegt eða viðeigandi af orsökum sem varða þjóðaröryggi, löggæslu eða annan almannahag. Þessu til viðbótar og þrátt fyrir sérhvert ákvæði þessarar persónuverndarstefnu áskiljum við okkur rétt til notkunar og afhjúpunar á persónuupplýsingum og ópersónulegum upplýsingum í því skyni að rannsaka, koma í veg fyrir eða bregðast við lögbrotum, gruni um svik eða aðstæðum sem fela í sér mögulega hættu á líkamsskaða hjá öðrum einstaklingi, eða í öðrum þeim tilgangi sem lög kveða á um.

Vernd persónugreinanlegra upplýsinga

Samtökin taka öryggi persónugreinanlegra upplýsinga alvarlega. Þegar Stelpur rokka! / Læti! geymir persónuupplýsingar frá þér notum við efnislegar öryggisráðstafanir sem er eingöngu deilt með því starfsfólki og sjálfboðaliðum sem þjónusta þig beint. 

Heilleiki og varðveisla persónugreinanlegra upplýsinga

Stelpur rokka! / Læti! mun varðveita persónugreinanlegar upplýsingar þínar eins lengi og þarf til að uppfylla það sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma.

Aðgangur að persónugreinanlegum upplýsingum

Stelpur rokka! / Læti! veitir þér aðgang og afrit að gögnum í hvaða tilgangi sem er, þ.m.t. til að biðja okkur um að leiðrétta gögnin ef þau eru ónákvæm eða eyða gögnunum ef félaginu ber ekki skylda til að varðveita þau lögum samkvæmt. 

Áhersla Stelpur rokka! / Læti! á persónuvernd þína

Til að tryggja öryggi persónugreinanlegu upplýsinganna þinna upplýsum við starfsfólk og sjálfboðaliða um reglur okkar varðandi persónuvernd og öryggi og framfylgjum með ströngum hætti öryggisráðstöfunum innan samtakanna. 

Spurningar um persónuvernd

Ef spurningar eða athugunarefni koma upp varðandi persónuverndarstefnu eða gagnavinnslu Stelpur rokka! / Læti! eða ef þú vilt kvarta yfir hugsanlegu broti á persónuverndarlögum skaltu hafa samband við okkur á netfangið info@stelpurrokka.is

Þegar okkur berst spurning um persónuvernd mun formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins fara yfir samskiptin og leitast við að taka á því tiltekna athugunarefni eða fyrirspurn sem þú vilt fá svör við. Ef málið er umfangsmeira í eðli sínu gætum við óskað frekari upplýsinga frá þér. Öllum slíkum umfangsmeiri samskiptum er svarað. Ef þú sættir þig ekki við svar okkar geturðu beint kvörtun þinni til Persónuverndarstofnunar. Ef þú spyrð okkur munum við leitast við að veita þér upplýsingar um leiðir til að leggja fram kvartanir sem eiga við þínar kringumstæður.