„Er Ísland besti staður í heimi til að vera kona?“
Fjallað var um Læti! í heimildamynd BBC um stöðu jafnrétti kynjanna á Íslandi. Við töluðum um mikilvægi þess að brúa menningarlega bilið í kynjamálum og bjóða upp á öruggara rými fyrir stelpur, stálp og trans krakka í tónlistariðkun, sérstaklega í bílskúrshljómsveitum þar sem mikill meirihluti tónlistarfólks eru sís strákar. Ef börnin læra að taka pláss hjá okkur, þá geta þau farið út í heiminn og tekið pláss þar!

